Kawasaki Sýning.

Frumsýning verður á 2011 Kawasaki KXF hjólunum á morgun föstudag milli kl: 14 og 18 í Nítró Aku og Rvk.
Léttar veitingar og heitt á könnunni.
Sjáumst hress.
Kv. Starfsmenn Nítró.
Kawasaki 2011.
En nánar síðar.
kv. Sig B.
Vaknaður.
En núna tekur ísspólið brátt við. Vonandi eru liðsmenn að æfa á fullu? ræktin, útihlaup og crossfitt það nýjasta. En crossfitt er sagt mjög gott fyrir hjólafólk? enda margar endurtekningar og vöðvaþrek.
Vonandi verða sem flestir með á ísnum í vetur?
Kv. Stíflaði ritarinn.
Heimboð KKA.
KKA í samvinnu við K2M og Nítró mun standa fyrir heimboði KKA
Frítt í mótocross og endurobraut KKA. Allir að hjóla einsog engin sé morgundagurinn.
sunnudaginn 1. ágúst 2010
* Endurokennsla fyrir byrjendur. hefst kl: 10:00 upp við félagsheimili. Kennari Þorsteinn Hjaltason. Frítt.
* Enduroferð K2M fyrir alla. ca 2-3 tímar. Mæting með hjól á kerru eða bíl upp við félagsheimili KKA kl:13:00
* Torfærukeppni. á sunnudag kl. 18:00 ef stemmari og einhver fjöldi verður?
Þjónusta:
Tvö gasgrill verða uppí húsi. Fólk getur því grillað og notað húsið að vild.
Ef einhver er í vandræðum með geymslu á hjóli yfir nótt meðan á Akureyrardvöl stendur þessa helgi, þá er bara að hafa sambandi við Sigurð hjá Nítró Aku. s: 893-0409
Bakvakt verður í Nítró ef eitthvað vantar. S:893-0409
Nánari uppl: Siggi s: 893-0409, Stebbi Gull s: 662 5252 Birkir: 893 7917
KKA Heimboð um verslunarmannahelgina.
KKA býður hjólafólki að eiga góða hjólahelgi um verslunarmannahelgina á Akureyri. KKA mun eftir fremsta megni reyna að gera þessa helgi skemmtilega fyrir þá sem vilja koma og eiga góða helgi á aksturssvæði KKA. Motocrossbrautin mun verða í toppformi svo og endurosvæðið.
Ekki er búið að teikna endanlega dagskrá en hún fer m.a. eftir veðri og þátttöku.
Viðburðir:
- Endurotúr í nágrenni Akureyrar (2-3 tímar)
- Hjólatorfærukeppnin gamla góða.
- Motocross æfingar alla helgina.
- Kynning á sportinu fyrir byrjendur. Umhirða hjóla, búnaður o.fl.
Annað:
- Frítt verður í motocrossbrautina á laugardeginum.
- Geymsla inni fyrir hjól verður í boði þessa helgi.
- Nítró verslun Aku verður með bakvakt alla helgina.
- Gasgrill verða við félagsheimili KKA. Allir að grilla saman?
Nánari upplýsingar um tímasettningar o.fl verða þegar nær dregur.
F.h. KKA. Sig B.(Nítró) Unnar H og Stebbi Gull.
MX Ólafsfirði.
En mótið á Ólafsfirði var frábært, brautin mjög skemmtileg og í leiðinni mjög erfið fyrir hjól og ökuþóra. allt um úrslit inná www.msisport.is en af Team Green north var dagurinn nokkuð góður. Signý hafnaði í öðru sæti og það gerði einnig Anton í B-flokki. Gaman að sjá Signý mætta aftur á ráslínu eftir fótbrotið. Nú Kjartansdætur voru í 4 og 5 sæti og eru klárlega að kroppa í toppinn. Jonni mætti í crossið eftir 2 ára pásu, sýndi góða takta á köflum en kúppling strýddi honum rétt einsog Ómari Þorra. en ómar var í sínni fyrstu keppni á 450cc. Sig B. var 3 í B40 og ca 7 í B flokk. Ingvar var í 6 sæti B flokks.
Kv.Sig B.
Klaustur 2010
Þá er veislunni á Klaustri lokið. Þetta var nokkuð óvenjulegt Klaustur aðallega vegna þess að veðrið var frábært allan tímann og einnig vegna þess að brautin var klárlega erfiðari en oftast áður. Mýrarkaflinn tók sinn toll, en var á sama tíma mjög skemmtilegur fyrir þá sem sigruðust á honum. Ég hugsa að þeir sem leystu félaga sína af eftir fyrsta hring hafi flestir verið hissa að sjá sinn mann koma inn gjörsamlega með hálfa mýri á hjólinu og sér sjálfum. Einnig má segja að mýrarkaflinn hafi komið á óvart þar sem við vorum stödd í suðurhreppi en all margir úr þeim hreppi voru hálf fúlir yfir hve erfið mýrin var hjá okkur hér á Aku í fyrra. Meðlimir Team Green North voru fjölmargir mættir til leiks. All flestir skiluðu sér í mark, en einsog gengur voru smá óhöpp og slíkt en þrátt fyrir það í heild frábær dagur. Anton Freyr gerði sér lítið fyrir og sigraði Járnkarlinn. Flottur árangur það í fyrsta sinn í 6 tíma keppni. Jonni og Markus enduðu síðan í öðru sæti í tvímenning. Síðan voru þrjú lið í kringum 20 sæti og tvö í kringum 40 sæti.
Nokkrar myndir voru teknar af Team Green North fyrir keppni í nýju göllunum. Flott lið. Myndir verða settar í myndaalbúm á næstunni.
Kv. Sig B.
Hard enduro sýning.
kv. Sig B.
Klaustur 2010 hugarórar formanns..
Það er allt að gerast. Rúmlega 400 keppendur eða svo. Og meðlimir Team Green north verða fjölmargir þarna. Ca 15-16 keppendur frá TG N. og nokkrir ská meðlimir auk þess. Þetta er frábær mæting. Akureyrar grúbban verður öll í sömu gistingu. Síðan verða stúlkurnar okkar 3 saman í liði, Andrea,Ásdís og Sigþóra og vonandi lætur Signý sjá sig á hliðarlínunni.
Það verður klárlega blóð sviti og tár í keppni innbyrðis milli norðanmanna. Heyrst hefur að þungar refsingar verði fyrir neðsta sæti innbyrðis og það næst neðsta.
Dæmi:
Neðsta liðið leggur á borð og vaskar upp eftir grillveisluna.
Næst neðsta Grillar ofaní allt liðið.
þriðja neðsta þarf að þvo hjólin.
Stelpunar þurfa, ef þær standa sig ekki! að hlusta á Stebba Gull syngja "Fjöllin hafa vakað" 10 sinnum. og það er erfið þraut.
Liðin sem vitað er um að norðan. Sig B./Gulli flugv. Bjarni/Knútur Steini/Ingvar Stebbi gull/Jói Helgi/Kristó. Björn Ó/Ómar Þorri.
Balli/Fjalar. Kjartan/jói. Anton í einstaklings. Jonni! Stebbi bað/Krissi. Unnar/Gunni H. Andrea/Ásdís/Sigþóra
kv. Sig B.
Klaustur og enduro.
En fyrst er nú enduro mót í suðurhreppi, í byrjun maí. Ekkert er vitað um staðsettningu? eða hvað? það væri nú gaman að sjá norðanmenn mæta vel í þetta fyrsta mót. enda fín æfing fyrir Klaustur.
Kv. mótanefnd.
Mývatnshátíðinni lokið.
Það er óhætt að segja að meðlimir Team Green north séu í skýjunum með helgina á Mývatni. Í íscrossinu náðust þrír íslandsmeistara titlar í hús. Tvísýnt var fyrir lokaumferð um efstu sætin. En eftir þriðju umferð var það yfir-gassinn sjálfur Anton Freyr sem varð íslandsmeistari í vetrardekkjaflokk. Frábært að sjá framfarirnar hjá Antoni í vetur. Andrea Dögg sigraði síðan kvennaflokk með glæsibrag. Ásdís varð önnur og Ásta þriðja. Eða sem sagt systur í þrem efstu sætum til íslandsmeistara. Ásgeir Hall sigraði samanlagt í opnum flokk, en fjöldamörk náðust ekki í þennan flokk.
Sjá nánari úrslit helgarinar inná jonni.is og myndir inná motosport.is
En þetta voru ekki einu sigrarnir hjá okkar fólki. Jonni sigraði snocrossið, Og það sama gerði Andrea í sinni fyrstu keppni á sleða.
Til hamingju með þetta krakkar. Og takk fyrir frábæra mótosport helgi Mývetningar.
Kv. Sig B.
Sýning. 2010 hjólin.
Sýning verður á 2010 götu og torfæruhjólum í Nítró/N1 Akureyri næstkomandi föstudag milli 16-18.
25% afsláttur verður á Nítró vörum öðrum en hjólum og tilboðsvörum. Kaffi og bakkelsi.
Verið velkomin.
Klaustur 2010
Það er allt að gerast. 400 keppendur eða svo. Og meðlimir Team Green north verða fjölmargir þarna. Ca 15-16 keppendur frá TG N. og nokkrir ská meðlimir auk þess. Þetta er frábær mæting. Akureyrar grúbban verður öll í sömu gistingu. Síðan verða stúlkurnar okkar 3 saman í liði, Andrea,Ásdís og Sigþóra og vonandi lætur Signý sjá sig á hliðarlínunni.
Það verður klárlega blóð sviti og tár í keppni innbyrðis milli TG n meðlima. Heyrst hefur að þungar refsingar verði fyrir neðsta sæti innbyrðis og það næst neðsta.
Dæmi:
neðsta liðið leggur á borð og vaskar upp eftir grillveisluna.
næst neðsta Grillar ofaní allt liðið.
þriðja neðsta þarf að þvo hjólin.
Stelpunar þurfa, ef þær standa sig ekki að hlusta á Stebba Gull syngja "Fjöllin hafa vakað" 10 sinnum. og það er erfið þraut.
Liðin sem vitað er um að norðan. Sig B./Gulli flugv. Bjarni/Knútur Steini/Ingvar Stebbi gull/Jói Helgi/Kristó. Björn Ó/Ómar Þorri.
Balli/Fjalar. Kjartan/jói. Anton í einstaklings. Jonni/?? Stebbi bað/Krissi. Andrea/Ásdís/Sigþóra
kv. Sig B.
Nýir meðliðmir Team Green North.
Það bætist í hópinn hægt og rólega. Þeir nýustu eru Ásgeir Hall og Ingvar frá Egilsstöðum. Báðir aka þeir á Kawasaki KXF 250. við bjóðum þá velkomna í liðið.
Nýliðadeild TG N.
Vorverkin.
Vinsamlegast gangið í að skoða þessi mál og svarið formanninum sem fyrst.
Síðan eru 2010 Kawasaki að detta inn á næstu dögum. Svona ef menn vilja endurnýja?
TG N verður klárlega með fremstu liðum þegar kemur að útliti?
kv. Gallanefnd.
2. Umferð íscross.
Sæl, já þetta var ágætismót hjá sunnanmönnum. Nokkuð góð mæting, en þó hefði maður haldið að fleiri sunnanmenn kæmu til leiks? Það var að vanda vel mætt af okkar fólki úr Mývatnssveit, eða alls 9 keppendur. Stúlkurnar okkar norðanmanna stóðu sig vel einsog venja er. En það sama verður ekki sagt um karlmennina af norðurlandinu. Þeir voru flestir fastir í slo gírnum, nema kannski Steingrímur sem að sýndi góða spretti en vantaði aðeins uppá stöðugleikan. Hjólamenn á Akureyri eru full straumlausir orðnir í þessu þykir mér. eitt kvikindi mætti frá Akureyri. Úrslit inná msisport.is en gróft sagt. Eina sem TG N getur grobbað sig að er Kvennafl: no 1. Andrea 2. Ásdís 3. Ásta 4. Sigþóra.
Kv. Mótanefnd.
Íscross í Reykjavíkurhreppi.
Vil benda hjólafólki á grein eftir svonefndan Konung þúfnanna. sjá: teamsilicon.net grein um heimasíður umboða.
Sjáumst í Rvk.
Kv. Sig B.
Hvammur kl 17:00 á Miðvikudaginn

Jæja þá er að rífa sig upp af rassgatinu og drífa sig á Hvamm kl 17:00 á Miðvikudaginn 10 feb Stefnt er að því að setja upp braut og og taka smá íscross. Endilega mætum sem flestir og tökum smá race.
Kv. Steini
Arftaki Klausturs fundinn
"Stjórn VÍK hefur komist að samkomulagi við nýjan aðila um að halda Off-Road challenge í sumar. Brautarstæðið er á Suðurlandinu og er stórglæsilegt og í anda Klausturskeppnanna sem haldnar voru í upphafi þessarar aldar. Að sögn formannsins er svæðið gríðarlega spennandi, steinlaust, hólar, hæðir, sandur og annað skemmtilegt.
Nánari upplýsingar verða kynntar fljótlega og skráning hefst hér á vefnum 1.mars á miðnætti."
Þetta er náttúrulega alger snilld, vonandi að okkur takist að vekja upp gamla Klausturs andann og gera góða enduro hátíð á Hvítasunnunni þetta árið !

kv. Steini
Kawasaki KXF 250F 2010 valið hjól ársins
Það er greinilegt að Kawasaki 250 2010 er heldur betur að slá í gegn, þetta hjól hefur verið að vinna test hér og þar uppá síðkastið og síðast vann það test hjá Transworldmotocross, en þeir völdu hjólið hjól ársins 2010.Þeir sögðu þetta um hjólið : Ef það er eithvað að í 250 F Kawasaki þá finnum við það allavega ekki. Græna skrímslið er hreint út sagt undravert.
Nú er ekkert annað að gera nema að hafa samband við Nitró og næla sér í Kawasaki 250

Kv Steini

