Arftaki Klausturs fundinn
08. febrúar 2010 klukkan 10:15
Tekið af www.motocross.is:
"Stjórn VÍK hefur komist að samkomulagi við nýjan aðila um að halda Off-Road challenge í sumar. Brautarstæðið er á Suðurlandinu og er stórglæsilegt og í anda Klausturskeppnanna sem haldnar voru í upphafi þessarar aldar. Að sögn formannsins er svæðið gríðarlega spennandi, steinlaust, hólar, hæðir, sandur og annað skemmtilegt.
Nánari upplýsingar verða kynntar fljótlega og skráning hefst hér á vefnum 1.mars á miðnætti."
Þetta er náttúrulega alger snilld, vonandi að okkur takist að vekja upp gamla Klausturs andann og gera góða enduro hátíð á Hvítasunnunni þetta árið !

kv. Steini