Motocross námskeið.
20. maí 2009 klukkan 15:50
Laugardaginn 23.maí mun Ragnar Ingi Stefánsson halda námskeið í Akureyrarbraut fyrir Kawasaki keyrara. Byrjum kl: 9:30 stundvíslega. og endum ca 12:30 Ragnar mun dusta af okkur slæma brautarsiði o.fl.
Námskeiðið er í boði Nítró. En þeir sem vilja taka þátt verða að greiða í brautina með dagmiða eða kaupa árskort sem eru bestu kaupin. þetta er upplagt tækifæri til að koma sér í gírinn fyrir mótið um þarnæstu helgi.
Kv. Fræðslusvið TG north.

Meðlimir TG, fréttir.
19. maí 2009 klukkan 19:10
Nokkrir meðlimir TG north mættu í Enduro í Bolöldu. Eitthvað gékk það misjafnlega. Jonni stóð sig vel, sigraði E1 með glæsibrag á nýju KXF250. Til lukku með þetta Jonni. Anton var illur í Baldursdeild og keyrði vel. Aldursforseti liðsins gafst upp sökum meiðsla (slappur) Jói og Knútur voru með í tvímenning já, voru með...
Signý keppti á Spáni. Hún átti fremur erfiða daga þarna. lenti í krassi o.fl. Gengur bara betur næst.
Mótanefnd TG North.
Signý keppti á Spáni. Hún átti fremur erfiða daga þarna. lenti í krassi o.fl. Gengur bara betur næst.
Mótanefnd TG North.
Fyrsta Enduromót sumarsins.
11. maí 2009 klukkan 16:28
Fyrsta mótið verður í Bolöldu um næstu helgi. Vitað er um nokkra liðsmenn TG north sem mæta. Anton, Bjarni, Knútur, Helgi, Jonni, Siggi, Stebbi. En eru fleiri sem mæta?? hvar eru stúlkurnar okkar? ætla þær ekkert að Endurúast??
Mótanefnd TG north.
Mótanefnd TG north.
Signý stóð sig vel.
10. maí 2009 klukkan 21:21
Já, þetta fór þannig hjá stúlkunni að í fyrri umferð endaði hún í 21 sæti og í því 33 í umferð no 2. Ég veit ekki, en er þetta ekki bara frábært? að komast í gegnum þessa keppni með bestu keyrurum heims. Nú er stúlkan komin á bragðið? og ákveðin reynsla komin til að hjálpa henni í næstu keppni. Vonandi nær hún að keyra eitthvað í vikunni og meðtaka peppið sem stóri bróðir hennar mun mata hana á. Signý, Eyrún og Stebbi til hamingju með þetta og gangi ykkur vel þarna úti.
Sig B.
Sig B.
Fim motocross 2009. Signý að keppa.
10. maí 2009 klukkan 08:27
Liðsmaður TG north Signý Stefánsdóttir keppti í gær laugardag í Portugal á sínu öðru móti í FIM mótaröðinni. Það er frá því að segja að hún endaði í 21 sæti af ca 40 í fyrri umferð. Seinni umferð er í dag sunnud. Fylgist með inná
www.freecaster.tv þar verður bein útsending kl ?? áfram Signý...
Fjölmiðladeild TG north.
www.freecaster.tv þar verður bein útsending kl ?? áfram Signý...
Fjölmiðladeild TG north.
Motocross braut klár.
08. maí 2009 klukkan 09:16
Brautin í Ólafsfirði er klár. Búið er að lengja hana og laga og er að sögn Helga Reynis brautarstjóra orðin býsna góð? En hann hefur dundað við hana á ýtunni þegar hann á að vera í vinnunni sl vikur.
Brautarnefnd TG north.
Nýji liðsmaðurinn.
07. maí 2009 klukkan 14:26
Jæja, það ber að tilkynna nýjan liðsmann. #24 Jonni er gengin í lið með TG north og mun keppa á KX250F í sumar. Enduro er hans aðalgrein á hjólinu. Velkominn Jonni.
Til hamingju Ásdís Elva.
25. apríl 2009 klukkan 20:32
Já, skvísan hún Ásdís var fermd í dag. TG north óskar henni til hamingju með daginn. vonandi margt hjóló í pökkunum..
Sýning í Nítró Akureyri.
16. apríl 2009 klukkan 16:37
Á morgun föstudag 17.apríl verða nýju Kawasaki KXF 450 og 250 til sýnis og sölu í verslun Nítró og N1 Aku.
Meðlimir Team Green North sérstaklega velkomnir.
Meðlimir Team Green North sérstaklega velkomnir.
Liðsmaður Team Green North tekur þátt í heimsmeistaramótaröð.
02. apríl 2009 klukkan 20:39
Já það er óhætt að segja að Signý nokkur Stefánsdóttir sé ekki með neina meðalmennsku í gangi.
Hún er núna stödd í Búlgaríu ásamt Stefáni föður sínum. Þau skrubbu svona snöggan bíltúr sem hófst í Mývatnssveit, þaðan til Seyðisfjarðar með bíllinn í Norrænu. Síðan tóku þau land í Danmörku og renndu til Búlgaríu rétt einsog það sé svona handan við hornið. Skvísan er að fara taka þátt í fyrstu umferð í FIM Motocrossinu en alls eru sjö umferðir keyrðar í hinum ýmsu löndum í sumar. sjá nánar á www.motocrossmx1.com Við sendum baráttukveðjur frá liðsmönnum TG north. áfram Signý....